Pizzusósa á la Jamie Oliver

Pizzur og pasta

Einföld pizzusósa

Efni:
1 dós niðursoðnir tómatar
1 msk tómatþykkni
3-4 msk olífuolía
2-3 hvítlauksrif
salt, svartur pipar, oreganó

Meðhöndlun
Vökvinn látinn leka af tómötunum, þeir hakkaðir og ALLUR vökvi kreistur úr þeim, td. í viskastykki, settir í skál ásamt hökkuðum hvítlauknum, olífuolíu, tómatþykkni, salti, nýmöluðum pipar og oreganó.
Látið bíða í kæli amk. 1 klst. eða á meðan gott pizzudeig er útbúið.
Ofaná má svo setja hvað sem til er af góðu hráefni.

Sendandi: Anna María Valtýsdóttir <annamaria@skyrr.is> (13/10/2006)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi