Freisting sælkerans.

Óskilgreindar uppskriftir

Undirbúningur: 10, mínútur.Bökunartími:20. mínútur.Uppskriftin er fyrir fjóra til sex.

Efni:
6.franskbrauðsneiðar
1.Camembert-ostur(150 g)
2.1/2 dl rjómi eða kaffirjómi.
6.skinkusneiðar
1.lítil græn paprika.
1.lítil rauð paprika..

Meðhöndlun
Stillið bakarofninn á 175-200¨.Skerið skorpuna af franskbrauðssneiðunum og raðið þeim í botninn á smurðu eldföstu móti.Brytjið Camembert-ostinn og bræðið. Hellið rjómanum saman við í smáskömmtum. Brytjið skinkusneiðar og paprikur frekar smátt.Hellið ostblöndunni yfir brauðið og stráið skinku-og paprikubitum yfir.Bakið í heitum ofni þar til rétturinn er rétt farin að taka lit(eðaí um það bil 15, mínútur)..

Sendandi: Elísabet Ástvaldsdóttir <bragi @ok.is> (04/09/1997)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi