Marenstoppabomba (B.O.B.A!)

Brauð og kökur

Dásamlegar sykursprengjur

Efni:
3 eggjahvítur
200gr púðursykur
10 tromp
200gr rjómasúkkulaði (t.d. ein stór Siríusplata)

Meðhöndlun
Eggjahvíturnar og púðursykurinn eru þeyttar saman mjög vel. (stífþeyttar)

Á meðan eru Tromp stykkin og súkkulaðið brytjað niður í litla bita.

Svo er bitunum blandað varlega saman með sleif við marensinn.

Blandan er svo sett á bökunarplötu í litla toppa með teskeið.

Bakað í ofni við 150° í ca. 15-20 mín eða þar til topparnir eru orðnir stökkir að utanverðu.

Sendandi: Bjarni Sigurðsson <bjarnis@skyrr.is> (15/12/2006)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi