Eftirlæti piparsveinsins

Brauð og kökur

Einfalt, gott, hollt(?) og bolt, og fljótt, og ódýrt

Efni:
1 stk eldavél
1 stk panna (meðalstór)
1 slatti smjör/matarolía
2 brauðsneiðar
1/4 lítri kjötfars
krydd eftir smekk
1 stk smekkur

Meðhöndlun
Kveikið á eldavélinni, pönnuna á heitu helluna, smjörið á heitu pönnuna,
kjötfarsið á brauðsneiðarnar (báðum megin, brauðsneiðarnar á heita smjörið,
sem er á heitu pönnunni, sem er á heitu eldavélinni, steikið í 2-3 mín
(ég gleymdi 1 stk. klukka), snúið, étið (með t.d. svona jukk-salati, sem fæst
búðum í plastboxum).

Sendandi: Hermóður Héðan <herhe@þaðan.be> (25/10/1997)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi