Sojakakó bolli

Sérfæði

Fínt fyrir þá sem hafa mjólkuróþol

Efni:
250 ml af Provamel sojamjólk (í bláu)
1 msk kakó
smá Agave syróp eða 1 tsk hrásykur

Meðhöndlun
Hita mjólkina (í örbylgjuofni, hræra kakóinu saman við ásamt sætuefninu (hef líka notað sykurlaust DaVinci karamellusýróp, fæst hjá Kaffitár). Allt freytt í könnu til að freyða mjólk fyrir kaffi (fæst í Te og Kaffi). Sett í sætan bolla.

Til hátíðarbrigða má nota dálítinn sojarjóma...

Sendandi: Friðrika Kr. Stefánsdóttir <fridrika@flott.is> (23/09/2007)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi