Humarpizzan
Pizzur og pasta
Humarpizza
Efni:
Ólífuolía
Saxaður hvítlaukur 3 rif (eða eftir smekk)
Hráskinka
Rifinn ostur 2 pokar
10 vænir humarhalar
1 Camenbert
Parmasenostur
Klettasalat
Meðhöndlun
Fletjið út deigið og dreifið ólífuolíu á botninn. Dreifa síðan hvítlauk yfir. Botninn þakinn með skinku og einn poki af rifnum osti yfir það.  Þetta er bakað í 10 mín á 250°.  Pizzan tekin út aftur og humar settur ofaná.  Einum poka af osti dreift yfir.  Camenbert skorinn í  bita og dreift yfir.  Þetta er bakað í 10 mín á 250°.  Pizza tekin úr ofni klettasalat sett yfir og Parmasenosti dreift yfir það.
Þetta er c.a 16 tommupizza
Sendandi: Beta <beta@skyrr.is> (26/10/2007)