Bláberjabaka.

Óskilgreindar uppskriftir

Eftirréttur eða bara hvenar sem er.

Efni:
100 gr. smjörlíki brætt
100 gr. kókomjöl
1 1/2 dl. hveiti
1 dl. sykur
3 dl. Bláber (hellst íslensk).

Meðhöndlun
Allt hrært lauslega saman nema berin. Hluti af deiginu þrýst innan í eldfast form (líka aðeins uppá barmana). Bláberjunum þá stráð yfir og pínu sykri, síðan restin af deiginu dreift yfir. Bakað í 20 mín. við 200 C. Borið fram með þeyttum rjóma.

Sendandi: Ingunn Kjartansdóttir <ingunn@vortex.is.> (19/04/2008)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi