Geðveik Pepperoni ýsa

Fiskréttir

Brjálaður hvítlaukur, græn krydd( ekta fiskur í felum).

Efni:
2.ýsuflök
1½ bolli soðin hrísgrjón
Hvítlauksolía(tilbúin eða heimagerð)
Góður slatti pepperoni.
1.dós tomat purré
Steinselja, timian,meiran,sítrónupipar og góður slatti rifin ostur t.d. Búri

Meðhöndlun
Soðin hrísgrjón sett í botnin á stóru eldföstu móti. Tómat purré smurt yfir og
steinselju stráð þar ofaná. Vætið lítillega í með hvítlauksolíu. Leggið ýsu-
flökin það ofaná,kryddið með sítrónupipar og raðið síðan pepperoni það ofaná(þétt)og síðan meiri hvítlauksolía.
Síðan er að krydda með timian og/eða meiran, osturinn yfir allt og inn í
180 gráðu heitan ofn á blæstri(200 á venjulegum)þangað til osturinn er orðinn
brúnn og bobblí.

Ath. Fyrir hina miklu sælkera Íslands. Blandið krömdum papprikuflögum í ostinn
og notið þá Búra. AAAAAAAFFFFFFAAAAARRRR GGGGGOOOOOTTTTTT. Drekkist með flösku
af góðu hvítvíni og heimabökuðu brauði(td. með oregano,hvítlauk og sólþurrkuðum
tómötum)

Sendandi: Lára Lukkulega <larabjork@hotmail.com> (25/11/1997)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi