Kjúklingabringur m/engifer og hvítlauk

Kjötréttir

réttur fyrir fjóra

Efni:
4-5 st kjúklingabringur
ferskur engifer
ferskur hvítlaukur
eðal grillkrydd frá pottagöldrum
11/2dl iso4 matarolía
sósa
1 st piparostu
l peli matarrjómi
1 nautakjötsteningur.

Meðhöndlun
engifer og hvítlaukur rifin niður í olíuna ég nota svona 2-3 rif af hvítlauk og um 2cm af engifer má vera meira allt eftir smekk hvers og eins. kryddað eftir smekk. kjúklingabringurnar settar í lögin og látið marinerast í 1.klukkutíma.
Grillað og borðað með fersku salati og bökuðum kartöflum.
svo er bara gott að hafa piparostasósu með þessu.
Verði ykkur að góðu.

Sendandi: Laufey Böðvarsdóttir <laufeyb@postur.is> (18/02/2009)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi