Kjúklingaofnréttur með pestó, feta og döðlum

Kjötréttir

Kemur svo á óvart, algjört æði.

Efni:
3-4 Kjúklingabringur
1 krukka Feta ostur í kryddolíu
1 krukka rautt Pestó
Döðlur eftir smekk

Meðhöndlun
Bringurnar skornar í hæfilega bita, settar í skál ásamt Feta ostinum (og nærri því alla olíuna úr krukkunni) Pestóinu og döðlunum (döðlur skornar í litla bita. Hrært saman og sett í eldfast mót og bakað í 35-40 mínútur við 200°

Meðlæti: hrísgrjón, ferskt salat og brauð.

Sendandi: Addý <addgys@simnet.is> (24/06/2009)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi