Bananabrauð (:

Brauð og kökur

ljúffengt

Efni:
1 egg
150 g sykur
2 þroskaðir bananar
250 g hveiti
1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt

Meðhöndlun
Þeytið eggið og bætið sykrinum saman við í skömmtum. Þeytið saman við eggið i hrærivél. Merjið banana með gaffli og hrærið saman við eggið og sykurinn í hrærivélinni. Sigtið saman hveiti, matarsóda og salt og hrærið léttilega saman við bananablönduna með sleif. Setjið í vel smurt aflangt form, 1 1/2 lítra og bakið í 180°C en 160°C með blæstri í heitum ofni í 45 mínútur.

Sendandi: maría rós benediktsdóttir <mariaros_1@msn.com> (11/09/2009)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi