Möggubrauð

Brauð og kökur

Alveg rossalega gott nammibrauð

Efni:
750 gr mjöl (t.d. 500 gr hveiti og 250 gr grahamsmjöl eða bollumjöl)
1 tsk salt
100 gr sólblómafræ
200 gr sveskjur
2 stór epli (græn eða bara það sem til er)
2 msk maltextrakt
2 bréf þurrgers
5 dl volgt vatn (~30°)

Meðhöndlun
Setjum maltextrakt í skál ásamt 2 dl af vatninu og hrærum saman. Þá er
sólblómafræjunum, sveskjunum og eplunum blandað saman við og saltað. Þá
er restinni af vatninu hellt útí. Setjum þurrger og mjöl í hrærivélarskál
og hellum vökvanum útí. Hnoðum í hrærivél. Skiptum deiginu í 2 brauð og
látum hefast í 30 mínútur. Bökum í 40 til 45 mínútur við 180°C. Þegar
brauðin eru tilbúin er gott að vefja þau inn í rök viskustykki svo
skorpan verði ekki of hörð. Brauðin má frysta.

Maltextrakt er sérstakt sætuefni sem hægt er að fá í Heilsuhúsinu.
Það lítur út eins og síróp og er í krukku. Það sem ég á við með
"bollumjöl" er tilbúið þurrefni sem þarf aðeins að bæta vatni í eða e-ð
svoleiðis og þá ertu með tilbúið bolludeig í um 20 bollur. Þetta fæst í
öllum búðum býst ég við.

Verði þér að góðu.

Sendandi: Heiðrún <heidrung@hi.is> (06/03/1998)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi