Súkkulaðislys í eldhúsinu

Brauð og kökur

Súkkulaðikaka með súkkulaði, gott að hafa rjómaís með

Efni:
4 egg

2 dl sykur

200 g smjör

200 g súkkulaði (td. 100 g 70%+100 g suðusúkkulaði)

1 dl hveiti

Meðhöndlun
Egg og sykur þeytt vel saman.

Smjör og súkkulaði brætt og blandað saman við eggja/sykurblönduna.

Hveiti bætt við og hrært varlega saman

Bakað við 170° í 27-30 mín.

Ofan á kökuna:

250 g suðusúkkulaði

50 g smjör

2,5 dl rjómi

2 msk Grand Marine. (Má sleppa. Líka hægt að nota vanillu og/eða pipamyntu

Allt brætt við lágan hita og smurt á kökuna.

Sendandi: Joe Chocolate (26/02/2010)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi