Mjög Góður Svamptertubotn

Brauð og kökur

Mjög góður svampbotn Fínn í veislutertur

Efni:
8 stk. Egg
250 gr. Sykur
250 gr. Hveiti
3 tsk. Lyftiduft
3 msk. Vatn.

Meðhöndlun
Stífþeytið egg og sykur og blandið sigtuðu hveiti, lyftidufti
og vatni saman við. Notið kantað mót 30*40 sm eða 3 hringmót 26 sm.
Bakið við 170-180c í miðjum ofni í 10 - 20 mín.

Sendandi: Kristín Sveinsdóttir <Sunna@islandia.is> (14/04/1998)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi