Hreindýrahamborgarar - algjör snilld

Óskilgreindar uppskriftir

Uppskrift fyrir 8 hreindrýarhamborgara

Efni:
Uppskrift fyrir 8 borgara:

1kg. hreindýrahakk
1/2 stór rauðlaukur
3 hvítlauksrif
1 vorlaukur
4 tsk. ferskt Timian (eða þurrkað og þá 1-2 tsk.)
2-3 tsk. villibráðarkrydd
2 stk. egg
3 msk. furuhnetur
3-4 tsk. Maldon salt
Nýmalaður pipar.
1 Gullostur (í gylltum umbúðum)
8 stk. stór hamborgarabrauð

Furuhneturnar eru ristaðar og saxaðar, rauðlaukurinn, hvítlaukurinn og vorlaukurinn eru einnig saxaðir smátt og öllu blandað saman við hreindýrahakkið í stóra skál. Því næst er ferska Timianið skoðrið smátt og bætt út í ásamt villibráðarkryddinu og eggjunum. Þá er Maldon saltinu bætt við og ríflega af nýmöluðum pipar.

Allt er þetta hrært vandlega saman þar til orðið að fínu hakk degi. Ef deigið er mjög blautt má bæta smá brauðmylsnu út í til að jafan deigið. Látið standa í kæliskáp í 2-3 klst.


Meðlæti:

Lambhagasalat
Tómatar
Gúrkur
Steiktur laukur
Rauðkál (algjört möst)
Tómatssósa
Dijon sinnep (með fræjum)
Dijonnaise (Hellemann´s Creamy Dijon Mustard)

Meðhöndlun
Deginu er svo skipt niður í 8 jafnstóra hluta og pressað í hamborgara. Gaman er að gera hamborgarana aðeins öðruvísi s.s. ferkanntaða í stað kringlóttra.

Hamborgararnir eru svo grillaðir eins og lög gera ráð fyrir, helst medium rare til að viðhalda sem mestu af bragði.

Skerið niður Gullostinn í þunnar sneiðar (reynið að finna nýja framleiðslu þar sem osturinn enn frekar harður), þessi ostur gerir „punktinn yfir i-ið“. Notið stór hamborgarabrauð og hitið í ofni (eða á grillinu).

Meðlæti og viðbætur:

Sæt kartöflufranskar eða skífur:

Sætar kartöflur flysjaðar og skornar niður í skífur eða svona klassískt útlítandi franskar. Sett í eldfast mót. Dash af jómfrúarolíu hellt yfir og svo saltað og piprað. Bakað í ofni í 45 mínútur, eða þar til þær verða mjúkar og fallegar.


Með þessu er borið fram rauðvín og bjór, alveg frábært!!!

Sendandi: Pétur Bauer <peturbauer@outlook.com> (19/10/2014)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi