tómatsalat

Grænmetisréttir

Grískt sumarsalat

Efni:
500 gr. tómatar
1 laukur (meðalstór)
1,5 msk. sítrónusafi
1 msk. vatn
3 msk. ólívuolía
3/4 tsk. basil
3/3 tsk. marjoram
1 tsk. sinnep
1 tsk. hunang
salt og pipar eftir smekk

Meðhöndlun
Skerið tómatana í þykkar sneiðar. Saxið laukinn smátt. Blandið rest saman. Látið svo eitt lag af tómötum í botn á skál, stráið svo saxaða lauknum yfir og svo kryddblöndunni. Svo annað tómatlag og koll af kolli þar til allt er búið. Látið standa í lokuðu íláti í 1 klst. fyrir framreiðlsu.

Sendandi: Friðrika Kristín Stefánsdóttir <fridrika@flott.is> (31/07/1998)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi