Rækjuréttur Oddnýjar

Óskilgreindar uppskriftir

Ég borða ekki rækjur en þegar ég kemst i þetta salat mömmu halda mér engin bönd!

Efni:
500 gr rækjur
1 franskbrauð, skorið í kubba.
1/2 dós ananaskurl, safinn með.
4 harðsoðin egg.
1 peli (250ml) rjómi, þeyttur.
4 dl majones (má blanda alveg upp í 50/50 með sýrðum rjóma).
Salt, pipar, karrý og paprikudufti stráð yfir.

Meðhöndlun
Allt sett saman og þjappað í fallega skál.
Sjúklega gott!

Sendandi: Friðrika Stefánsdóttir <fridrika at flott punktur is> (22/01/2020)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi