Fínlegur pastaréttur

Pizzur og pasta

Pasta með sinneps-,sveppa- og piparostasósu.

Efni:
1/2 pakki af tagliatelle
1/2 poki tortelini (m. osti eða kjöti)
Sveppir (eftir smekk)
skinka ca. 4-6 sneiðar
1 púrrulaukur
1-2 hvítlauksrif
1-1 1/2 dós sýrður rjómi
1/2 piparostur
1/2 mexikanskur ostur
2-3 msk Dijon sinnep
2-3 dl léttmjólk
salt og pipar
paprikukrydd

Meðhöndlun
1. Sjóðið taglitelle-ið og tortelini-ið skv. leiðbeiningum.
2. Skerið niður sveppina, skinkuna, hvítlaukinn og púrrulaukinn og steikið á pönnu.
3. Bætið ostunum út á pönnuna og lækkið hitann, láta bráðna.
4. Bætið sýrða rjómanum útí og léttmjólkinni.
5. Bragðbætið með sinnepinu, salti og pipar og paprikukryddi.
6. Hellið pastanu út á pönnuna og látið malla í ca. 4-5 mín.
7. Berið fram með t.d. hvítlauksbrauði og hvítvíni.

Sendandi: Edda <eikiedda@hotmail.is> (03/09/1998)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi