Tíramisú

Ábætisréttir

GOTT

Efni:
250 g suðusúkkulaði
24 ladyfingrs (kex) eða
2 hrærðir tertubotnar
2 bollar mjög sterkt kaffi ( kælt )
6 egg
6 msk granulated sykur
500 g rjómaostur
1/2 dl rjómi

Meðhöndlun
Leggið kexið eða tertubotnanna í bleyti í kaffið ( ef notaðir eru botnar eru þeirskornir út eftir mótinu sem nota á ). Leggið helminginn af ladyfingers kexinu í botninn á glermóti. Hrærið eggjarauður og sykur þar til létt og ljóst. Hrærið rjómaostinn mjúkan með rjómanum og blandið eggjahrærunni saman við rjómahræruna. Setjið helminginn af hrærunni yfir kexið í mótinu, stráið helmingnum af súkkulaðinu yfir, þá kexi, síðan því sem eftir er af rjómaostahrærunni og efst súkkulaði.
Látið standa í 2-3 klst. áður en borið er fram.
Setjið kakó yfir þá er þetta orðið svoldið bakaríslegt
Svo er líka gott að bleyta botninn með kaffi og captein morgan...........

Sendandi: BKÓ (14/02/1999)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi