Pasta með mildr pastasósu

Pizzur og pasta

Þetta er alveg æðislegur réttur og mjög auðveldur, nánast hver sem er getur gert hann.

Efni:
2-300 g sveppir
2 msk smjör
2 og hálfur dl rjómi
1 dl hvítvín
2 hvítlauksgeirar
hálf tsk salt

Meðhöndlun
hreinsið sveppina og sneiðið. Látið þá krauma í smjörií u.þ.b. 5 mín. Merjið hvítlaukinn og bætið út í ásamt hvítvíni og rjóma. Látið sjóða við vægan hita í 8-10 mín. Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á umbúðum. Berið sósuna heita fram ásamt pastanu og ítölsku smábrauði.

Sendandi: Vigdís Ásgeirsdóttir <Er ekki komin með> (09/05/1999)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi