Gómsætt rúllutertubrauð

Brauð og kökur

Gómsætt rúllutertubrauð fyrir 6-10 manns. Mjög vinsælt í veislum.

Efni:
2 rúllutertubrauð
300 gr. skinka
1 dós aspas
250 gr. paprikuostur
250 gr. sveppaostur
6 matskeiðar majones
Ostur
Provencale-krydd (ef ekki til þá bara Season All)
Paprikukrydd

Meðhöndlun
Fyrst er settur paprikuostinn og sveppaostinn saman í pott og hitað þar til það er búið að blandast vel saman. Þá er settmajonesið og helmingurinn af aspassafanum saman við og hrært. Þá er skinkan skorin niður og sett aspasinn og skinkuna út í pottinn og kryddað með Provancale kryddinu. Þá er þessu smurt inn í rúllutertubrauðið, því rúllað upp. Að lokum er settur ostur yfir og kryddað með paprikukryddinu. Hitað við 180°c þar til osturinn er farinn að bráðna.

Sendandi: Anna Sigríður Arnardóttir <annasigga@simnet.is> (03/06/1999)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi