Ananas ostakaka

Brauð og kökur

Hrikalega góð og fersk, ekki væmin.

Efni:
Botn.
100 gr. smjör
1 dl. púðursykur
Haust grahamskex (hafrakex tæpur pakki)

Mið-hluti.
300 gr. rjómaostur
2 tsk. vanilludropar
3/4 bolli sykur
1 dós ananaskurl (millistærð)

Efsti-hluti.
Sítrónufrómas eða ananasfrómas (búin til úr pakka eftir leiðbeiningum)
1 peli rjómi (þeyttur)

Meðhöndlun
Botn.
Smjör og púðursykur brætt saman, setjið hafrakexið mulið saman við og látið í form, aðeins upp á kanta, og látið kólna í ísskáp.

Mið-hluti.
Hrærið saman rjómaost vannilludropa sykur og ananas og setjið á botninn, kælið í ísskáp.

Efsti-hluti.
Frómas og rjómi blandað saman og sett yfir ostakökuna.

Sendandi: Addý <arndis.baldursdottir@tmd.is> (17/01/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi