Fljótlegasta eplakaka í heimi

Brauð og kökur

Frábær í saumaklúbbinn eða sem eftirréttur.

Efni:
5 epli jonagold eða græn
1 pk makkarónukökur
2 msk sítrónusafi
1 peli rjómi
súkkulaðispænir

Meðhöndlun
Rífa niður eplin á rifjárni, mylja makkarónurnar niður bleyta í með sítrónusafanum. Landa þessu saman. Þeyta rjómann setja hann yfir. Strá svo súkkulaðispónum yfir allt saman.

Sendandi: Dagny Sigr. <0> (28/08/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi