Smjörkrem með köku
Brauð og kökur
Uppskriftinni fylgir líka kaka
Efni:
SMJÖRKREM:
100 gr Smjörlíki
2 1/3 dl flórsykur (Tæplega þó)
1 Eggjarauða
2 tsk Vanilludropar
Matarlitur ef vill (Helst blár :)
KAKA:
100 gr Smjörlíki
2 bollar (um 5 dl) sykur (Tæplega þó)
2 meðalstór egg
2 bollar (um 5 dl) hveiti
2 msk kakó
1 bolli Súrmjólk (Má vera nýmjólk)(Tæplega þó).
1 tsk matarsódi (Fjallatsk. lyftiduft)
Meðhöndlun
SMJÖRKREM:
Þeytið smjörlíkið
Bætið flórsykrinum við og síðan og síst eggjarauðan, vanilludr. og
matarlitur.
ATH: Það má líka nota Pilsbury súkkulaðikrem,
en þá er þetta orðið að súkkulaðikremi en ekki
smjerkremi.
KAKA:
Þeytið smjörlíki, sykur og egg saman, bætið síðan hveiti og kakói út í.
Hrærið súrmjólk og lyftidufti saman (sér) og þeytið svo allt heila klabbið saman, svo er blandan sett í form (Í minna lagi) og bakað við 200°C/400°F þangað til kakan er orðin nógu bökuð (u.þ.b 30 mín.)
Sendandi: Jens Þ (Á FULLT af góðum uppskriftum) <thordurh@rhi.hi.is> (09/01/1996)