Kartöflur í Pítusósu

Grænmetisréttir

Frábær kartöfluréttur tilvalinn með ofnsteiktu nautakjöti og viltsósu. Algjörlega heimatilbúið.

Efni:
500 gr hráar kartöflur.
Diet pítusósa mjög mikilvægt að það sé Diet.
Mjólk

Ath. Ef notuð er venjuleg Pítusósa þá er þetta óætt vegna fitu.
Ég er búin að sannreyna það.

Meðhöndlun
Kartöflurnar afhýddar og sneiddar og raðað í botn á eldföstu móti.
DIET Pítusósa þynnt út með mjólk ekki mikið samt.
Bakað í 20-30 mín. við 200°. Fylgjast vel með síðustu mín. svo ofdökkni ekki.
Það fer að sjálfsögðu eftir fjölda matargesta hvað þarf mikið af efni.






Sendandi: Anna Sólveig <skim@vortex.is> (12/09/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi