Kartöflupönnukökur

Grænmetisréttir

fljótlegt, ódýrt og mjöög gott, í alvöru!

Efni:
Fyrir 2 hungraða eða 4 sem meðlæti

3 - 4 stórar kartöflur
1 egg
salt og pipar
kúfuð matskeið hveiti
Til hátíðarbrigða:
smá skinka, saxaður laukur, saxaðir sveppir...

Meðhöndlun
Rífið kartöflurnar á grófu rifjárni
skellið öllu hinu útí og viðaukanum ef það er hátíð.
mótið í litla klatta og steikið á pönnu þar til þetta er til og borðið strax því það er best

Sendandi: Auður Magndís <aumagg@visir.is> (25/09/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi