Rice Crispies kökur

Brauð og kökur

Dísætar og fitandi kökur sem svíkja engan

Efni:
100 g súkkulaði
60 g smjörlíki
3-4 msk síróp
100 g Rice Crispies

Meðhöndlun
Bræðið smjörlíki og súkkulaði saman í potti.
Bætið sírópi út í.
Setjið Rice Crispiesið út í.
Hræið þessu vel saman.
Setjið í litla forma.
Verði ykkur að góðu!

Sendandi: Eygló <eyglo@malkav.nu> (30/11/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi