Haframjöls-og rúsínukökur

Smákökur og konfekt

Ég hef maulað þessar fyrir öll jól svo lengi sem ég man eftir mér.

Efni:
150 gr/2 bollar haframjöl, 200 gr/1,5 bolli rúsínur, 250 gr/1 bolli smjörlíki, 200 gr/1,5 bolli hveiti, 1 bolli sykur, 2 egg, 2 tsk matarsódi.

Meðhöndlun
Fyrst er haframjöl, rúsínur og smjörlíki hakkað saman (t.d. í matvinnsluvél). Því næst er restinni bætt út í. Þetta er hnoðað saman í höndunum, búnar til litlar kúlur og þrýst aðeins ofan á þær með gaffli. Bakað við 175 gráðu hita í 10-12 mín.

Sendandi: Friðrika Kristín Stefánsdóttir <fridrika@flott.is> (17/12/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi