Gazspacho frá Katalóníu

Grænmetisréttir

köld súpa, frábær á sumrin og fyrirtak á sunnudagsmorgnum ef vakað hefur verið lengi kvöldið áður. Alger vítamínsprengja.

Efni:
6-8 vel þroskaðir tómatar
1-2 hvítlauksrif
1/2 græn paprikka
1/2 rauð paprikka
1/2 dl græn olívuolía
1 dl vatn
4-5 sneiðar brauð, vætt í köldu vatni
svartur pipar og sjávarsalt

Meðhöndlun
öllu skellt í "blender" og maukað þar til fagurlega laxableikt (2-3 min. Sett í ílát og látið standa í kæliskáp áður en súpan er borin fram með hvítlauksbrauði.

Sendandi: Steinunn Birna Ragnarsdóttir <steinra@vortex.is> (21/02/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi