Rolóterta.

Brauð og kökur

Frábært terta á hvaða veisluborð sem er. Alltaf fyrsta tertan til að klárast.

Efni:
Marenge.
4 eggjahvítur
2 dl. sykur
l dl. púðursykur
1-2 lúkur Rice Crispies.


Fylling.
2 pelar rjóma
1 askja fersk jarðaber
1 lítil askja fersk bláber


Krem.
2½ pakki Rolo
50 gr. suðusúkkulaði
4-6 msk. rjómi

Meðhöndlun
Marenge.
Stífþeytið eggjahvíturnar, sykurinn og púðursykurinn mjög vel saman. Hræra síðan mjög varlega Rice Crispies útí. Teikna á bökunarpappír 2 x 20 cm hringi. Skipta deiginu jafnt á hringina. Baka báða í einu á 125-130° í 50-60 mín á blæstri.


Fylling.
Þeyta rjómann, skera berin niður (öll nema þau sem nota á til skreytingar á tertunni) og bæta síðan útí og setja á milli.

Best er að setja tertuna saman deginum áður en bera á fram.


Krem.
Bræða súkkulaðið yfir vatnsbaði og þynna með rjómanum, passa að það verði ekki of þunnt. Hella síðan yfir tertuna og skreita með ferskum jarðaberjum.


Sendandi: Aldís St. Mortensen <aldism@or.is> (01/03/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi