Hátíðarskelfisksúpa

Súpur og sósur

Matarmikil og góð súpa !

Efni:
50 gr. smjör
1/2 laukur
4 sveppir, ferskir
1/2 paprika
1/2 bolli púrrulaukur
1 msk steinselja
1/2 tsk karrý, milt
1 tsk picanta
1/4 tsk hvítlauksduft
40 gr.rækjur
50 gr.humar
50 gr.hörpuskel
40 gr.kræklingar úr dós + safi
1 tsk sósujafnari
1/2 dl hvítvín
3/4 l rjómi

Meðhöndlun
Látið smjörið á pönnu og setjið allt á hana nema vökvann, ristið í 2 mín. Bætið síðan rjómanum, kræklingasafanum og hvítvíninu út í og sjóðið í ca.4 mín.
Bragðbætt með salti og pipar ef vill.

Sendandi: Halla. <hallasif@islandia.is> (16/05/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi