Einföld og létt brokkolísúpa

Súpur og sósur

Fljótleg og þægileg grænmetissúpa

Efni:
1 haus af brokkolí (eða annað grænmeti, t.d. blómkál)
1 grænmetis- eða súputeningur
1 dós léttostur (bragðlaus)
1 l vatn
1 dl vatn+4 msk. hveiti hrist saman
Krydd eftir smekk

Meðhöndlun
Brokkolíið (má líka nota annað grænmeti) er skorið niður, skellt í pott (sumir steikja létt í 1 msk. af ólívuolíu), vatninu hellt yfir og náð upp suðu. Hveitijafningnum hrært saman við án þess að kekki og léttostinum skellt út í. Kryddað eftir smekk. Létt, þægileg og fljótleg súpa á vetrarkvöldum.

Sendandi: Guðrún Helga Sigurðardóttir <ghs@islandia.is> (21/08/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi