Brauð með grænmeti
Óskilgreindar uppskriftir
Fljótlegt og hollt!
Efni:
2 grófar brauðsneiðar
Smurostur
Grænmeti t.d. sveppir, blaðlaukur og paprika
Olía til steikingar
Meðhöndlun
Skerið grænmetið og steikið það í olíu. Smyrjið brauðsneiðar með uppáhaldssmurostinum ykkar. Steikið brauðsneiðarnar og setjið grænmetið ofan á þær.
Sendandi: Eygló <charity@visir.is> (22/09/2001)