Bananasalat

Ábætisréttir

Handa 4-6, áætlaður vinnutími: 20 mín.

Efni:
2 1/2 dl rjómi (1 peli)
4-6 bananar eftir stærð
50-100 gr rifið súkkulaði

Meðhöndlun
Þeyttu rjómann. Stappaðu bananana með gaffli.
Blandaðu banönunum og súkkulaðinu saman við rjómann.
Þá er salatið tilbúið.
Sagan segir að þetta sé ofsagott með t.d. kexi eða ristuðu brauði.

Sendandi: Ingimar Róbertsson <iar@pjus.is> (28/04/1995)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi