Barbecue Kjúklingur

Kjötréttir

Skemmtilegur og sérstakur Kjúlli en umfram allt einfaldur

Efni:

Einn kjúklingur

Sósan:
2 dl barbecue sósa
1 dl soja sósa
1 dl apríkósu sulta (eða marmelaði)
100 gr. púðursykur
50 gr. smjör

Meðhöndlun
Sósuefni allt sett í pott og suðan látin koma upp.

Kjúklingurinn svo bitaður og bitunum síðan velt upp úr sósunni.

Bitarnir eru svo lagðir í eldfast mót.

Hellið afgangnum af sósunni yfir kjúklingabitana.

Bakið í ofni við 200 C í 60-70 mín.


Etið svo með bestu lyst með hrísgrjónum og saladi.

Sendandi: Ásdís S. Ingadóttir <kklettur@snerpa.is> (11/03/1996)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi