Bleikar Ora fiskibollur

Fiskréttir

Uppáhaldið hennar Dísu

Efni:
Ora fiskibollur í dós

Sósa:
Soðið úr dósinni
50gr smjörlíki
Tómatsósa (smakka sig áfram)
Hálfur súputeningur
1 bolli vatn
1msk hveiti
2-3dl mjólk

Meðhöndlun
Smjörlíkið, soðið, tómatsósan, súputeningurinn og vatnið sett í pott og látið malla.

Hveitið og mjólkin hrist saman og blandað saman við restina af sósunni til að þykkja hana.

Fiskibollurnar settar út í og látnar hitna í gegn.

Sendandi: Ingimar Róbertsson <iar@pjus.is> (11/11/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi