Fyllt pasta í ostasósu

Pizzur og pasta

Einfalt og ljúffengt

Efni:
400g tortellini
200g ostur
100g Dalayrja
180g rjómaostur m/kryddjurtum
2 1/2dl matreiðslurjómi
1/2dl mjólk
krydd e. smekk
100g beikon

Meðhöndlun
1. Sjóðið pastað e. leiðbeiningum
2. Rífið ostinn og skerið Dalayrjuna í bita. Hitið rjóma og mjólk í potti og setjið ost, Dalayrju og rjómaost út í og hitið í 2-4 mín., eða þar til sósan þykknar.
3. Kryddið sósuna eftir smekk.
4. Skerið beikonið í bita og steikið á þurri pönnu. Blandið beikoninu saman við sósuna.
5. Skammtið pasta á diska, hellið sósunni yfir og stráið saxaðri steinselju yfir ef vill.

Sendandi: Ylfa <ylfa77@hotmail.com> (01/12/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi