Fiskur með kókos og karrý

Fiskréttir

Þessi réttur er alveg rosalega fljótlegur, þarf lítið magn af fiski í helling af klöttum og er afsaplega vinsæll á mínu heimili. Mæli eindregið með honum.

Efni:
Fiskur með kókos og karrý

1 dl hveiti
2 msk kókosmjöl
1 egg
1 tsk karrý
1 dl mjólk
salt, pipar
timian ef vill

Meðhöndlun

Öllu hrært saman, fiskur skorinn í litla fingurþykka bita og velt upp úr deiginu, teknir með skeið þannig að svolítið af deigi komi með og steikt á pönnu eins og litlir klattar, hafa góðan hita á feitinni. Borið fram með hrísgrjónum og súrsætri sósu, t.d. úr krukku.

Sendandi: Hrefna (04/12/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi