Salsasúpa

Súpur og sósur

Góð tilbreyting!

Efni:
1 laukur
4dl matreiðslurjómi
3dl tómatsalsa, medium
1msk. tómatþykkni(paste)
1 poki nachosflögur
salt
pipar

Meðhöndlun
Saxið laukinn fremur smátt og setjið hann í pott ásamt rjómanum.
Hitið að suðu og látið krauma í u.þ.b. 10 mín. Hrærið þá salsa og tómatþykkni saman við og látið krauma áfram í 5-10 mín. Bragðbætið með salti og pipar og berið súpuna fram með nachos.

Nachosflögurnar má mylja yfir súpuna eða borða með.

Sendandi: Ylfa <ylfa77@hotmail.com> (01/01/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi