Indverskur pottréttur

Kjötréttir

Góður pottréttur

Efni:
3 kg lambagúllash
6 eggjarauður
4 1/2 dl olía
3 tsk karrý
12 tsk kjötkraftur
9 tsk sykur
6 tsk salt
4-6 msk sósulitur
9 msk worchester sósa
6 msk kínversk soya
4 msk kartöflumjöl

Meðhöndlun
Blandað saman og kjötið látið liggja í þessu yfir nótt.
Grænmeti sett saman við. Broccoli, laukur, púrra, gulrætur, sveppir, paprika, litlar frosnar gulrætur. 3 pelar rjóma.
Soðið við vægan hita í aðeins 10 mínútur

Borið fram með ristuðu kókósmjöli og mango chutney.

Sendandi: Páll <pallk@centrum.is> (31/03/1996)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi