Spínatsalat

Óskilgreindar uppskriftir

Svaka gott salat

Efni:
1 pk. frosið spínat
2 rauðlaukar, saxaðir
1 dós sýrður rjómi
2 msk. majónes
1 pk púrru/ostasúpa
1 stór skinkupakki (skinkan skorin smátt)

Meðhöndlun
Spínatið látið þiðna.
Sýrða rjómanum og majónesinu hrært saman ásamt súpuduftinu. Öllu blandað saman (kreistið mesta vökvann úr spínatinu og rífið niður í salatið).

Frábært í veisluna eða saumaklúbbinn, með góðu brauði eða kexi.

Sendandi: Dæs (12/02/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi