Ostasalat

Óskilgreindar uppskriftir

Ferskt og gott salat

Efni:
1 lítil dós majónes
1 dós sýrður rjómi
1 dós kurlaður ananas
1 rauð paprika
1 púrrulaukur (hvíti hlutinn, smátt saxaður)
1 camembert
200 gr. ostur (eða piparostur)
200 gr skinka (má sleppa)
Vínber eftir smekk

Meðhöndlun
Safanum hellt af ananasnum.
Blanda saman majónesi, sýrðum rjóma og ananas.

Skerið allt hitt í litla bita og blandið öllu saman. Kælið (gott að láta standa í ísskáp í klukkutíma áður en það er borið fram).

Verði ykkur að góðu :)

Sendandi: Dæs (12/02/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi