Texas-kjöthleifur

Kjötréttir

mjög gott

Efni:
1 kg. nautahakk
2 bollar laukur
1 bolli söxuð græn paprika
5 egg
5 brauðsneiðar, sem legið hafa í vatni
1/4 bolli tómatsósa
1/4 bolli sinnep
2 msk. Tabascosósa
skvetta af laukdufti
salt og pipar e. smekk
meiri tómatsósa, ef vill

Meðhöndlun
Hitið ofninn á 200°c. Blandið öllum hráefnunum saman í skál og notið hendurnar til að vinna þau saman. Mótið hleif og setjið á eldfastan disk. Bakið í u.þ.b. 45 mín. Fylgist bara með hvenær hann er tilbúinn.

Sendandi: Ylfa <ylfa77@hotmail.com> (02/06/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi