Speltbrauð

Sérfæði

Mjög gott brauð

Efni:
3 bollar sigtað speltmjöl
2 bollar speltmjöl
5 tsk lyftiduft
1½ tsk salt
1 egg
1 msk hlynsíróp
1 msk ólífuolía
2 bollar sojamjólk
1 msk kúmenfræ (má sleppa)

Meðhöndlun
Blanda öllu saman í hrærivél.

Blanda má sólblómafræjum, sesamfræjum eða öðrum fræjum saman við eftir smekk.
Bakað við 180° - 190° í 60 mínútur.

Uppskrift frá heilsuhúsinu

Sendandi: Beta <Beta@skyrr.is> (31/07/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi