Eplakakan hennar Andreu;)

Brauð og kökur

æðisleg volg með ís eða rjóma

Efni:
200g smjörlíki(brætt)
200g sykur
3 stk egg
200g hveiti
100g kókosmjöl
2 tsk lyftiduft
1 dl mjólk
3 epli(jonagold)

Meðhöndlun
Sykur og smjör hrært ljóst og létt,eggjunum bætt í einu og einu,síðan hveiti,lyftiduft og kókosmjöli,síðast mjólk.Sett í vel smurt mót.Eplin skorin í sneiðar og raðað ofaná og kanilsykri stráð yfir.
Bakið við 175° í u.þ.b 45-50 mín

Sendandi: Nafnlaus (07/11/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi