Tobbakartöflur

Óskilgreindar uppskriftir

Frábærar og einfaldar kartöflur í ofni

Efni:
Kartöflur
Season All krydd
Montreal Steak krydd
Ólífuolía

Meðhöndlun
Skrælið kartöflurnar og skerið í fjóra báta. Slettið smá ólífuolíu yfir bátana og kryddið með Season All og Montreal Steak.

Sett í ofnfast fat og í ofn. Eldist þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar (stingið á þær með prjón).


Sendandi: Ingimar Róbertsson <iar@pjus.is> (14/04/2003)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi