Kjúklinga Lasagne

Kjötréttir

Hollur

Efni:
1 stk. kjúklingur soðinn, eða steiktur
1 stk. laukur
2 stk. hvítlauksgeirar
2 msk. olía
1 dós tómatar
1 tsk. oregano
1 tsk. salt
1 tsk. svartur pipar
2 msk. tómatpuré
1 dl. vatn

500 gr. kotasæla
Lasagne plötur
Ostur til að setja ofan á

Meðhöndlun
Laukur og hvítlaukur mýktur á pönnu. Allt sett á pönnuna og kjúklingurinn settur útí í lokin.

Allt sett í eldfast mót, til skiptis, kotasæla, kjúklingur og lasagne plötur.
Osti stráð yfir.
Sett í ofn í 30 mínútur við 180°

Sendandi: Addý á Ísafirði <addgys@simnet.is> (27/05/2003)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi