Besta Pizza

Pizzur og pasta

Besta pizza

Efni:
Frábær Pizza
Fundin upp 29. janúar 2003 J

Búa til botninn J Þessi er þunnur en góður.
Ca. 250 – 300 gr. Hveiti.
Ca. 100 ml. Volgt vatn -líka gott að nota ca. 50ml./50ml. vatn og Bjór.
50ml. Matarolía ISIO4.
1 bréf þurrger 11,8 gr.
Smá salt og smá sykur (hjálpar gerinu)

Láta botninn hefast í ½ tíma og fletja hann síðan út á smjörpappir.

Setja síðan á botninn í þessari röð J

Ca 1 dl Sacla Dried tomato’s and Garlic sósa
Ca ½ dl. Tómatsósa
Blandað saman og smurt oná botninn.

Rifinn Pizza ostur sett oná sósuna
(nota rúmlega helminginn af Pizzuosta poka frá OSTA&SMJÖRS. restin fer á síðar...)
Síðan er settur rauðlaukur ég notaði bara ystu lögin EKKI KJARNANN.
Rauð paprika í strimlum (þunnum)
Pepperoni frá SS.
Skinka í strimlum.
Sveppir saxaðir frekar þunnt.
Nokkrir hvítlauks geirar saxaðir yfir (ekki pressaðan)
smá osti dreift yfir alltsaman (allsekki of mikið)
kryddað með Pizza kryddi frá Mc.Cormic
(Classic Pizza seasoning Italian Bend) áður en pizzan fer í ofninn !

Sett á steikjandi heita ofnplötu (gott að draga þetta bara á smjörpappírnum á plötuna)
og svo Bakað í 220°c heitum ofni í 15-20 mínútur.

Þegar Pizza er tilbúin er hellt mjórri bunu af hvítlauksolíu
á jaðarinn og gjarna yfir Pizzuna alla. (EKKI MIKIÐ)

Meðhöndlun

Sendandi: EiKi <vidgerd@mi.is> (08/07/2003)

UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi