Bernesósa

Súpur og sósur

Þessi eina sanna

Efni:
250 g ísl smjör
3 eggjarauður
1-2 tsk bernesesse
kjörkraftur eftir smekk
1/2 tsk estragon
smá salt.

Meðhöndlun
Bræðið smjörið í potti,hafið það samt ekki of heitt,þeytið eggjarauðurnar vel í skál.Hellið smjörinu saman við í mjórri bunu og þeytið vel á meðan.Takið sósuna af hitanum meðan þetta er gert því hún má alls ekki sjóða því þá skilur hún sig.Bragðbætið með bernesesse,kjötkrafti og smá salti og estragoninu.

Sendandi: Linda (04/10/2003)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi