Hollar haframjölsbollur

Brauð og kökur

Hollar brauðbollur

Efni:
4 dl vatn
50 g pressuger
1 dl jógúrt/súrmjólk
2 tsk. salt
2 tsk. sykur
700 g hveiti
100 g haframjöl
45 g rapsolía

Meðhöndlun
Setjið vatnið (ca. 27 gráður) í skál og leysið gerið upp í því.
Bætið jógúrt/súrmjólk, salti og sykri útí. Hrærið hveiti og haframjöli útí vökvan og bætið að lokum olíunni útí.
Hnoðið vel. Látið hefast í 20 mínútur. Mótið bollur úr deiginnu. Látið bollurnar hefast undir klút í 25-30 mínútur.
Bakið við 190 gráður í 10-15 mín. eða þar til bollurnar eru ljós brúnar.

Sendandi: Hjördís Kjartansdottir <hjordis_k@hotmail.com> (27/04/2004)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi